Íslensk fjallagrös hf - sprotafyrirtæki á gömlum grunni

Fyrirtækið var stofnað á Blönduósi 1993 og hefur frá upphafi sérhæft sig í þróun og framleiðslu á heilsuvörum og fæðubótarefnum úr íslenskum fjallagrösum (Cetraria islandica).

Nýlega var vöruframboðið aukið og kraftur settur í sölu- og markaðsstarf. Áætla má að smásöluveltan sé nú alls um 70 milljónir króna og munar um minna á krepputímum.
 
Íslenskir Fjallagrasa Brjóstdropar er nýjasta varan og hefur fengið afar góðar viðtökur gegn kvefi og hálssærindum. Íslenski Fjallagrasasnafsinn nýtur líka vaxandi vinsælda hjá erlendum ferðamönnum í Leifsstöð og fæst hann nú einnig í verslunum ÁTVR.
 
Vörur okkar fást á www.nammi.is
 

0Krakkamixtúra með súkkulaðibragði

Krakkamixtúra með súkkulaðibragði úr fjallagrösum er ný hálsmixtúra.
Inniheldur fjallagrasaþykkni með fjölsykrum sem mynda þunna himnu yfir slímhúð í hálsi og efri hluta öndunar-vegar. Mixtúran hefur því mýkjandi áhrif og er góð gegn særindum í hálsi. Auk fjallagrasanna, inniheldur mixtúran hunang sem er þekkt fyrir bakteríuhemjandi virkni.
 
 
Er án alkóhóls og hentar börnum á öllum aldri.
Nánar...

0Magamixtúra

Magamixtúra
 
 
Magamixtúra úr fjallagrösum er nýjasta afurðin frá fyrirtækinu Íslensk fjallagrös.
Við þróun mixtúrunnar er byggt á reynslu margra kynslóða af notkun fjallagrasa gegn alls kyns kvillum í maga. Virka efnið í grösunum eru fjölsykrur, en það eru trefjar, sem fara ómeltar í gegn um meltingarveginn, örva meltinguna, mýkja hægðir og koma jafnvægi á magann.
 
Nánar...

0Hálsmixtúra með hunangi og mintu.

Hunangsmixtúra
 
 
Hunangsmixtúra úr fjallagrösum er ný hálsmixtúra frá fyrirtækinu Íslensk fjallagrös.
Inniheldur fjallagrasaþykkni með fjölsykrum sem mynda þunna himnu yfir slímhúð í hálsi og efri hluta öndunar-vegar. Mixtúran hefur því mýkjandi áhrif og er góð gegn særindum í hálsi. Auk fjallagrasanna, inniheldur mixtúran hunang sem er þekkt fyrir bakteríuhemjandi virkni.
 
 
Er án alkóhóls og hentar allri fjölskyldunni, börnum jafnt sem fullorðnum.
 
Nánar...

0Krakkamixtúra með appelsínubragði

Krakkamixtúra með appelsínubragði úr fjallagrösum er ný hálsmixtúra frá fyrirtækinu.
Inniheldur fjallagrasaþykkni með fjölsykrum sem mynda þunna himnu yfir slímhúð í hálsi og efri hluta öndunar-vegar. Mixtúran hefur því mýkjandi áhrif og er góð gegn særindum í hálsi. Auk fjallagrasanna, inniheldur mixtúran hunang sem er þekkt fyrir bakteríuhemjandi virkni.
 
 
Er án alkóhóls og hentar börnum á öllum aldri.
Nánar...

0Sorano orginal

Soprano fjallagrasahálstöflur eru sykurlausar.
 
 
Þær innihalda fjallagrasaþykkni en í því eru náttúruleg efni sem mýkja
hálsinn og eru sérstaklega góð fyrir þá sem reyna mikið á röddina s.s.
söngfólk, ræðumenn og kennara.
Nánar...

0Íslenskir brjóstdropar

Íslenskir brjóstdropar sem innihalda m.a. mentól, salmíak og alkóhól. Nýju brjóstdroparnir innihalda áfram mjög hátt hlutfall af fjallagrösum, sem tryggir mikla virkni þeirra eins og í hinum hálsmixtúrunum.
 
 
Brjóstdroparnir eru með alkohóli og því ekki handa ungum börnum.
 
Nánar...

1.990Fjallagrasa snapps.

Alkóhólseyði af fjallagrösum. Í flöskunni eru heil fjallagrös sem eru til mikillar prýði um leið og þau undirstrika beiskt bragð grasanna. Einstakur snafs sem ber keim af íslenskri náttúru. Sannur víkingadrykkur.
Nánar...

0Lakkrís hálsmixtúra

Lakkrís hálsmixtúra
 
 
 
Inniheldur fjallagrasaþykkni með fjölsykrum sem mynda þunna himnu yfir slímhúð í hálsi og efri hluta öndunar-vegar. Dregur úr þurrum hósta og ertingu. Mixtúran fer vel í maga og hefur góð og örvandi áhrif á meltingu.
Er án alkóhóls og hentar allri fjölskyldunni, börnum jafnt sem fullorðnum.
 
 
Nánar...

590Soprano lakkrís hálstöflur

Sykurlausar hálstöflur úr fjallagrasaþykkni. Þær innihalda fjölsykrur sem hafa mýkjandi áhrif á slímhúð í hálsi og draga úr þurrki, hósta og særindum. Hálstöflurnar eru sérstaklega góðar fyrir þá sem reyna mikið á röddina s.s. söngfólk, ræðumenn og kennara.
 
Nánar...