Fjallagrös og meðhöndlun þeirra
Hvað eru fjallagrös
Fjallagrös eru fléttur, sem er sambýli svepps og þörungs. Um er að ræða samvinnu tveggja lífvera, sem báðir aðilar hagnast á. Sveppurinn sér sambýlinu fyrir vatni og steinefnum, þörungurinn myndar lífræn efni með hjálp ljóstillífunar.
Fjallagrasanytjar
Fyrstu heimildir á Íslandi um fjallagrös er að finna í “Jónsbók” þar sem bannað var að tína grös á landi annarra bænda. Landsmenn nýttu grösin í seyði og kölluðu grasavatn eða grasate. Litið var á fjallagrös sem hollan og næringarríkan mat, auðugan af steinefnum og trefjaefnum. Víða annars staðar í heiminum hafa fjallagrös verið nýtt til lækninga um aldir, sérstaklega vegna öndunarfærasjúkdóma og meltingartruflana.
Fyrirtækið Íslensk fjallagrös ehf hefur um árabil unnið afurðir úr íslenskum fjallagrösum. Tilgangur þess er að framleiða heilsuvörur þar sem byggt er á þessum aldagömlu alþýðuvísindum um hollustu og lækningamátt jurtanna, sem og nútíma vísindarannsóknum.
Meðhöndlun grasanna
Fyrirtækið hefur leitað til bænda og landeigenda um kaup á grösum.
Til að vernda grasahagana og forðast oftínslu, leggur fyrirtækið
Íslensk fjallagrös áherslu á að eftirfarandi atriði verði höfð í huga við tínsluna:
- Að ekki sé tínt á sama svæði ár eftir ár
- Að u.þ.b. 30-50% plöntunnar sé skilið eftir í haganum. Rannsóknir benda til að ef ca. 50% fléttunnar er skilið eftir getur endurnýjunartíminn farið niður í 3-5 ár.
- Að varast sé óþarfa traðk á meðan á tínslu stendur, því þurr fjallagrös eru mjög stökk og brothætt.
Tínsla
Venja hefur verið að tína grösin með höndunum þegar þau eru blaut til að sem minnst af öðrum gróðri fylgi með. Þessi aðferð er frekar seinleg, en hentar vel þar sem grösin vaxa innan um runn- og lynggróður.
Önnur aðferð er að raka þurrum grösum upp úr sverðinum með e.k. hrífum eða kröfsum. Hrífa með styttum haus og minnkuðu tindabili hefur skilað góðum árangri við tínsluna. Augljóslega fylgir meira af aðskotagróðri með borið saman við að tína grösin blaut með höndum, en tæknivædd hreinsun á grösum getur vegið upp á móti því.
Þurrkun-hreinsun
Nauðsynlegt er að þurrka grösin strax eftir tínslu. Best er að dreifa úr þeim og snúa þeim reglulega.
Einföld og ódýr tækni getur aukið afköst við hreinsun grasanna borið saman við hreinsun í höndum. Hreinsunina má framkvæma með þrennu móti: á rist, með lofti og með því að fleita óhreinindin úr grösunum með vatni. Til að geta hreinsað grösin með því móti þarf rúmgott húsnæði og nægilegt rennandi vatn. Aðferðin sem valin er markast að einhverju leiti af húsnæðinu og því hve mikill fylgigróður og önnur óhreinindi er með í grösunum.
Geymsla
Öll vinna við grösin s.s. þurrkun, hreinsun og geymsla verður að fara fram á svæði sem er ómengað af dýraúrgangi.
Notkun fjallagrasa er gömul rótgróin hefð á Íslandi
Íslendingar hafa notað fjallagrös til matargerðar og lækninga um aldir. Litið var á grösin sem holla og næringarríka fæðu, auðuga af steinefnum, einkum járni, kalsíum og trefjaefnum. Grösin voru notuð með margvíslegum hætti, t.d. í fjallagrasamjólk, fjallagrasagraut, brauð, slátur og til tegerðar.
Lækningamáttur
Til lækninga hafa fjallagrös einkum verið notuð gegn kvillum í öndunarvegi s.s. kvefi, lungnakvefi, asma og berklum. Kvillum í meltingarfærum s.s. meltingatruflunum, magabólgum, hægðatregðu og sem lystaukandi meðal. Auk þess að vera notuð útvortis sem bakstrar á exem, þurra húð og á sár sem gróa illa.
Virk efni
Fjallagrös innihalda hátt hlutfall af vatnsleysanlegum fjölsykrum, ásamt sérstökum fléttusýrum, sem ekki finnast annars staðar í náttúrunni en í fléttum. Margar vísindarannsóknir hafa verið gerðar á virkni framangreindra efna og eru helstu niðurstöður eftirfarandi:
• Andoxunarvirkni
• Virkni gegn bakterium
• Virkni gegn veirum
• Virkni gegn æxlisvexti
• Styrking ónæmiskerfisins
Það er líklegt að Íslenska þjóðin hafi notað Fjallagrös allt frá landnámi árið 874. Fyrstu merki um notkun grasanna í sögunni er að finna í Íslendingasögunum, þar sem sagt er frá grasaferðum. Góðir grashagar voru metnir sem hlunnindi og juku verðgildi jarða.
Frá 18. og 19. öld eru margar heimildir um almenna notkun Fjallagrasa á Íslandi.
Grasaferðir
Allir bæir sem höfðu fjallagrasahlunnindi á jörðum sínum sendu hóp fólks, á hverju sumri, til að safna vetrarforða af grösum.
Ferðin var oftast farin í júní og tók um 6-14 daga. Þáttakendur voru aðallega konur og unglingar undir stjórn eins karlmanns.
Hópurinn fór til fjalla á hestum, búnum tjöldum, mat og skinnpokum fyrir grasatínsluna.
Þegar komið var á áfangastað, voru tjöldin reist, helst við læk eða á, eldstæði var útbúið og mosa og lyngi dreift í tjaldbotnana. Vinnan við söfnun fjallagrasanna hófst að kvöldi eða snemma nætur. Safnarinn hengdi pokann á öxl sér með sérstöku ofnu ullarbandi og menn dreifðu sér um svæðið. Safnað var alla nóttina enda bjart allan sólarhringinn á þessum tíma árs og jörðin rök af dögg. Rakinn mýkir fjallagrösin og auðveldar söfnun þeirra og aðskilnað frá öðrum gróðri.
Að morgni hélt fólk aftur til tjaldanna og settist að snæðingi. Ef viðraði, voru grösin þurrkuð úti í sólinni. Eftir máltíðina skemmtu menn hver öðrum með söng og rímnakveðskap. Sögur af álfum, huldufólki og útlögum voru einnig mjög vinsælar á þessum stundum. Eftir það lagðist fólk til svefns þar til kvöldaði, að haldið var til tínslu að nýju.
Þegar grasaferðin var á enda, var afraksturinn fluttur á hesum aftur heim til bæja. Þar var lokið við að þurrka grösin og hreinsa. Vetrarforðinn var geymdur í pokum og tunnum á þurrum stað.Grösin voru notuð á ýmsan hátt til matargerðar.
Matargerð
Dæmi um hefðbundna matargerð úr fjallagrösum.
Vatnsgrautur
Fjallagrös bleytt og skorin með sérstökum bognum hnífi
Heitu vatni helt yfir
Hveiti eða hrísgrjónum bætt út í.
Soðið
Borðað með mjólk
Fjallagrasamjólk
Heil fjallagrös soðin í mjólk
Borðað eins og súpa.
Fjallagrös í brauð og slátur
Fjallagrös notuð til að drýgja hveiti í brauð og sláturgerð, einkum á harðindatímum.
Fjallagrasate
Fjallagrös soðin í vatni. Grösin síuð frá og vökvinn notaður til drykkjar.
Þessi drykkur var talinn mjög heilsusamlegur og var mikið notaður við kvillum í öndunarvegi s.s. kvefi, lungnakvefi, asma og berklum. Kvillum í meltingarfærum s.s. meltingatruflunum, magabólgum, hægðatregðu og sem lystaukandi meðal.
Fjallagrös á húð
Fjallagrös bleytt og lögð sem bakstrar á þurra húð, exem og sár sem gréru illa.
Fjallagrös í nútíma þjóðfélagi
Þjóðfélagið á Íslandi hefur breyst mjög mikið frá lýsingunni hér að framan. Þjóðin er ekki eins háð náttúrunni um öflun matar eins og áður var. Meiri hluti þjóðarinnar býr í þéttbýli og lifnaðarhættir hafa breyst stórkostlega.
Við hjá Íslenskum fjallagrösum viljum byggja á hefðinni, sögunni og þeirri trú forfeðra okkar, að fjallagrös séu heilsusamleg fæða og stuðli að almennri vellíðan fólks. Til að ná þessum markmiðum hefur fyrirtækið þróað vörur sem eru aðgengilegar fyrir fólk í nútíma þjóðfélagi, þar sem áhugi fyrir náttúrulegum heilsuvörum fer sífellt vaxandi.




