Um okkur
Stofnað 1993
Fyrirtækið Íslensk fjallagrös ehf. var stofnað árið 1993 og hefur starfað óslitið síðan með sömu kennitölu. Fyrirtækið varð til úr þróunarstarfi hjá Iðntæknistofnun Íslands og samstarfi við Þróunarfélag Norðurlands vestra, Bláa lónið ofl. aðila víða um land. Ýmsir aðilar hafa verið hluthafar félagsins en núverandi eigandi þess er fjárfestingarfélagið Arkea ehf.Fyrirtækið Íslensk fjallagrös ehf. var stofnað árið 1993, sem svar við miklum útflutningi á óunnum fjallagrösum til meginlands Evrópu.
Markmið okkar er
• að nýta á sjálfbæran hátt, endurnýjanlega Íslenska náttúruauðlind
• þróa og framleiða vörur sem byggja á gömlum alþýðuvísindum og niðurstöðum vísindarannsókna.
• bjóða vörur sem eru hentugar og aðgengilegar fólki í nútíma þjóðfélagi
• markaðssetja afurðir á Íslandi og erlendis
Eigendur
Arkea ehf
Stjórn
Stjórn Íslenskra fjallagrasa skipa:
Formaður, Jakob Kristjánsson, Dr. í lífefnafræði. Ágúst Sindri Karlsson Gunnar Berg Viktorsson, Hera Garðarsdóttir
Framkvæmdastjóri er Hera Garðarsdóttir
Markaðs og viðskiptaþróun Gunnar Berg Viktorsson
Uppbygging
Uppbygging og rekstur fyrirtækisins byggir á úthýsingu. Allar vörur fyrirtækisins eru framleiddar hjá samstarfsaðilum og undirverktökum.
Samstarfsaðilar
Bændur og landeigendur víða um land
• Hráefnisöflun. Mestur hluti frá Vestfjörðum og Norðurlandi.




