0Hálsmixtúra með hunangi og mintu.

Hunangsmixtúra
 
 
Hunangsmixtúra úr fjallagrösum er ný hálsmixtúra frá fyrirtækinu Íslensk fjallagrös.
Inniheldur fjallagrasaþykkni með fjölsykrum sem mynda þunna himnu yfir slímhúð í hálsi og efri hluta öndunar-vegar. Mixtúran hefur því mýkjandi áhrif og er góð gegn særindum í hálsi. Auk fjallagrasanna, inniheldur mixtúran hunang sem er þekkt fyrir bakteríuhemjandi virkni.
 
 
Er án alkóhóls og hentar allri fjölskyldunni, börnum jafnt sem fullorðnum.
 
Nánar...

0Íslenskir brjóstdropar

Íslenskir brjóstdropar sem innihalda m.a. mentól, salmíak og alkóhól. Nýju brjóstdroparnir innihalda áfram mjög hátt hlutfall af fjallagrösum, sem tryggir mikla virkni þeirra eins og í hinum hálsmixtúrunum.
 
 
Brjóstdroparnir eru með alkohóli og því ekki handa ungum börnum.
 
Nánar...

0Lakkrís hálsmixtúra

Lakkrís hálsmixtúra
 
 
 
Inniheldur fjallagrasaþykkni með fjölsykrum sem mynda þunna himnu yfir slímhúð í hálsi og efri hluta öndunar-vegar. Dregur úr þurrum hósta og ertingu. Mixtúran fer vel í maga og hefur góð og örvandi áhrif á meltingu.
Er án alkóhóls og hentar allri fjölskyldunni, börnum jafnt sem fullorðnum.
 
 
Nánar...