Fjallagrasasnafsinn er alkóhólseyði af fjallagrösum. Möluð grös eru látin liggja lengi í sérstakri spírablöndu, sem leysir upp og dregur í sig líffræðilega virk efni úr grösunum og gefa m.a. hinn sérstaka lit og bragð drykkjarins. Engum bragð- eða litarefnum er bætt í og er því fjallagrasasnafsinn einstök náttúruafurð, sem hefur verið framleiddur frá 1993. Í flöskunni eru heil fjallagrös sem bæta enn frekar virknina og eru til mikillar prýði um leið og þau undirstrika beiskt bragð grasanna. Einstakur snafs sem ber keim af íslenskri náttúru. Sannur víkingadrykkur.
Alkóhólstyrkleiki 38%
Hráefnið í vörur okkar eru íslensk fjallagrös, sem eru handtínd á fjöllum og óbyggðum Íslands. Við gerum samninga við bændur og landeigendur víða um land, sem safna grösum, þurrka þau og hreinsa samkvæmt okkar leiðbeiningum og gæðaeftirliti áður en þau eru notuð í framleiðsluna.
Alkóhólstyrkleiki 38%.
Fáanlegur í ÁTVR, Leifstöð og á nokkrum börum á hótelum.