Magamixtúra
Magamixtúra úr fjallagrösum er nýjasta afurðin frá fyrirtækinu Íslensk fjallagrös.
Við þróun mixtúrunnar er byggt á reynslu margra kynslóða af notkun fjallagrasa gegn alls kyns kvillum í maga. Virka efnið í grösunum eru fjölsykrur, en það eru trefjar, sem fara ómeltar í gegn um meltingarveginn, örva meltinguna, mýkja hægðir og koma jafnvægi á magann.
Vandamál í maga og meltingarvegi er með stærstu heilsufarsvandamálum í hinum vestræna heimi. Aukinn hraði í nútíma þjóðfélagi veldur almennri streitu, breytingar hafa orðið á neysluvenjum með aukinni neyslu skyndibitafæðis og iðnaðarframleiddrar matvöru. Fólk gefur sér minni tíma til fæðunáms í daglegu amstri. Þessi breyting á lifnaðarháttum kemur oftar en ekki niður á meltingu fólks og tilhneigingin er sú að æ yngra fólk glímir við vandamál í meltingarvegi.
Fyrirtækið vill koma til móts við þarfir þessa hóps með nýju magamixtúrunni. Mixtúruna má nota að staðaldri sem fyrirbyggjandi aðferð til að halda meltingu í jafnvægi eða tímabundið til að losna við tilfallandi óþægindi.
Í þróunarvinnunni var mixtúran prófuð á 10 manns sem átti við mismunandi magavandamál að stríða. Kom í ljós að mixtúran hentaði best þeim sem þjáðust af óreglulegri meltingu og hægðatregðu.
Magamixtúran fæst í 200 ml. flöskum sem er u.þ.b. 10-20 daga skammtur. Mixtúran hentar börnum jafn sem fullorðnum. Margir þekkja meltingavandamál í tengslum við ferðalög og dvöl við framandi aðstæður. Til að svara því er mixtúran í plastumbúðum sem handhægt er að kippa með sér hvert á land sem er.