Hunangsmixtúra
Hunangsmixtúra úr fjallagrösum er ný hálsmixtúra frá fyrirtækinu Íslensk fjallagrös.
Inniheldur fjallagrasaþykkni með fjölsykrum sem mynda þunna himnu yfir slímhúð í hálsi og efri hluta öndunar-vegar. Mixtúran hefur því mýkjandi áhrif og er góð gegn særindum í hálsi. Auk fjallagrasanna, inniheldur mixtúran hunang sem er þekkt fyrir bakteríuhemjandi virkni.
Er án alkóhóls og hentar allri fjölskyldunni, börnum jafnt sem fullorðnum.