Krakkamixtúra með appelsínubragði

Krakkamixtúra með appelsínubragði úr fjallagrösum er ný hálsmixtúra frá fyrirtækinu.
Inniheldur fjallagrasaþykkni með fjölsykrum sem mynda þunna himnu yfir slímhúð í hálsi og efri hluta öndunar-vegar. Mixtúran hefur því mýkjandi áhrif og er góð gegn særindum í hálsi. Auk fjallagrasanna, inniheldur mixtúran hunang sem er þekkt fyrir bakteríuhemjandi virkni.
 
 
Er án alkóhóls og hentar börnum á öllum aldri.
Fjallagrasa hálsmixtúrurnar frá Íslenskum fjallagrösum hf hafa verið framleiddar á Íslandi frá árinu 2004 og líkað mjög vel gegn sárindum í hálsi, sem yfirleitt fylgja kvillum í öndunarfærum eins og kvefi og flensu.
 
 
Hingað til hafa verið tvær gerðir fjallagrasa hálsmixtúra á markaðnum, Hálsmixtúra með lakkrísbragði og Hálsmixtúra með hunangi og piparmyntu. Þó þær séu ætlaðar öllum aldurshópum, þá er ljóst að þörf er fyrir mixtúrur með nýju bragði, sem hentaði betur fyrir börn. Nú hefur verið lokið þróun á teimur nýjum hálsmixtúrum, önnur með súkkulaði og hin með appelsínubragði, sem börnum líkar yfirleitt betur. Nýju mixtúrurnar innihalda áfram mjög hátt hlutfall af fjallagrösum, sem tryggir sömu virkni og í fyrri gerðunum.
 
Mixtúrurnar eru án alkohóls og henta sérstaklega börnum allt frá 1 árs aldri.
 
 
Lækningamáttur
 
Íslendingar hafa notað fjallagrös (á latínu: Cetraria islandica, á ensku Iceland moss) í mat og til lækninga um aldir, einkum gegn kvillum í hálsi og maga. Fjallagrös innihalda leysanlegar trefjar, Lichenin (70% af þurrvikt) og Isolichenin (10% af þurrvikt) sem mynda mýkjandi himnu á slímhúð í hálsi og maga og draga þannig úr hósta og særindum í hálsi. Þessi áhrif eru vel þekkt og m.a. viðurkennd af heilbrigðisyfirvöldum í Evrópu. Fjallagrös innihalda líka fléttusýrur eins og Protolichesterinic Acid (2-7% af þurrvikt), sem sýnt hefur verið fram á að hefur hemjandi áhrif á bakteríur eins og Helicobacter pylori, sem m.a. getur valdið magasári.
 
Fjölmargar vísindarannsóknir virtra vísindamanna, en þ.á.m. er Prófessor Kristín Ingólfsdóttir lyfjafræðingur núverandi Rektor Háskóla Íslands, hafa sýnt að virku efnin í grösunum eru ónæmisörvandi og geta hindrað vöxt baktería og veira. Niðurstöðurnar styðja því vel við aldagamla trú manna á heilsugildi grasanna og að lækningamáttur þeirra eigi við rök að styðjast.